Lýsing
CoreX er frábært til að þjálfa hreyfiferla, virkja stöðugleikavöðva, virkja vöðva í upphitun og sem almennt æfingatæki.
CoreX var hannað af Alex McKechnie sjúkraþjálfara sem starfaði lengi hjá Los Angeles Lakers. Tækið er auðvelt í notkun og eykur virkni í stöðugleikavöðvum í gegnum æfingarnar.
Æfingablað á íslensku fylgir með.